Fréttir

true

Gull á grunnsævi – ráðstefna um tækifæri stórþörunga á Íslandi

„Stórþörungar eru verðmæt en vannýtt auðlind Íslands sem býður upp á einstök tækifæri til nýsköpunar, verðmætasköpunar og sjálfbærrar atvinnuuppbyggingar,“ segir í tilkynningu frá Breið þróunarfélagi á Akranesi. Breið stendur á morgun, fimmtudaginn 3. september, fyrir ráðstefnunni „Gull á grunnsævi – Tækifæri stórþörunga á Íslandi“ í nýsköpunarsetrinu á Akranesi. Ráðstefnan leiðir saman vísindafólk, frumkvöðla, fyrirtæki og…Lesa meira

true

Opnar nýja garnverslun í miðbæ Akraness

Verslunin Garnikó verður síðar í þessari viku opnuð við Kirkjubraut 10 á Akranesi. Garnikó er garn- og prjónaverslun. Að baki henni stendur Skagakonan Rakel Rósa sem segir viðtökurnar við Garnikó hafa farið langt fram úr þeim væntingum sem hún hafði þegar netverslunin var opnuð fyrir tæpu ári. Fyrirtækið hóf starfsemi sem netverslun með hágæða garn…Lesa meira

true

Rýmingarsala að hefjast í FOK í Borgarnesi

Eftir átta ára rekstur lífsstíls- og fataverslunarinnar FOK í Hyrnutorgi í Borgarnesi hefur núverandi eigandi ákveðið að hætta rekstri síðar í þessum mánuði. Auglýst hefur verið rýmingarsala á öllum vörum og hefst hún klukkan 16:30 á morgun, fimmtudaginn 3. september. Klukkan 22 annað kvöld byrjar svo rýmingarsala í vefversluninni. María Júlía Jónsdóttir og Jónas Björgvin…Lesa meira

true

Ný sóttvarnalög hafa tekið gildi

Ný sóttvarnalög tóku gildi í gær, 1. september, og leysa af hólmi lög sem gilt hafa frá árinu 1997. Lögin voru samþykkt á Alþingi í apríl eftir umfangsmikla endurskoðun og byggja meðal annars á reynslu af COVID-19 faraldrinum. Markmið laganna er áfram að vernda líf og heilsu fólks gegn smitsjúkdómum en jafnframt að skýra ábyrgð,…Lesa meira

true

ÍA heiðraði Gleðistjörnuna á Treyjudeginum

Leikmenn meistaraflokka kvenna og karla í knattspyrnu gengu um liðna helgi inn á leikvelli landsins í fjölbreyttum knattspyrnutreyjum. Tilefnið var Treyjudagurinn, árlegt átaksverkefni til að vekja athygli á málefnum krabbameinssjúkra barna. ÍA nýtti tækifærið til að heiðra Gleðistjörnuna, góðgerðarfélag sem stofnað var til minningar um Þuríði Örnu Óskarsdóttur. Þuríður lést árið 2023 eftir langa og…Lesa meira

true

Bátar á sjó og nýtt kvótaár hafið

Nýtt kvótaár í sjávarútvegi hófst í gær, 1. september, og tóku margir sjómenn gleði sína á ný eftir gott sumarfrí. Nokkrir bátar hófu sjósókn um miðjan ágúst eins og félagarnir á dragnótarbátnum Ólafi Bjarnarsyni SH frá Ólafsvík, sem landaði 23 tonnum í gær eftir tvo daga. Var uppistaða aflans koli auka annarra tegunda. Á myndunum…Lesa meira

true

Mikil hreyfing á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem gerður er fyrir Ríkisútvarpið í ágúst, er mikil hreyfing á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi. Þar ber helst að Samfylking tapar fylgi frá síðustu könnunum, en Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur bæta við sig. Ef þetta yrði niðurstaða kosninganna fengi Sjálfstæðisflokkur tvo kjördæmakjörna þingmenn í NV en flokkurinn mælist nú með 27,1% fylgi.…Lesa meira

true

Annir hjá myndavélabílnum

Í liðinni viku voru 74 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Að auki voru 1.097 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Tveir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá fengu fjórir kæru fyrir að nota farsíma við akstur, án handfrjáls búnaðar,…Lesa meira

true

Ræða líðan og tengsl ungmenna á Snæfellsnesi

Barnaheill og Geðhjálp heimsækja Snæfellsnes mánudaginn 7. september þar sem sjónum verður beint að líðan ungmenna, samskiptum þeirra og tengslum. Um kvöldið verður opinn fundur í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar sem niðurstöður samtals við ungmennin verða kynntar og rætt um hvernig samfélagið getur brugðist við. Heimsóknin er hluti af sameiginlegu verkefni Barnaheilla og Geðhjálpar sem ferðast…Lesa meira

true

Ungmennaráð gætir hagsmuna unga fólksins

Ungmennaráð Borgarbyggðar fyrir næsta starfsár hefur tekið til starfa. „Ungmennaráð gegnir mikilvægu hlutverki sem samráðsvettvangur ungs fólks og sveitarfélagsins. Hlutverk ráðsins er meðal annars að koma sjónarmiðum og tillögum ungs fólks á framfæri við sveitarstjórn og aðra stjórnendur sveitarfélagsins, gæta hagsmuna ungs fólks og stuðla að aukinni þátttöku þess í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku,“ segir…Lesa meira