Með þátttökunni vill ÍA leggja Gleðistjörnunni lið og vekja athygli á því mikilvæga starfi sem unnið er í þágu krabbameinssjúkra barna og fjölskyldna þeirra. Ljósm. Jón Gautur Foto

ÍA heiðraði Gleðistjörnuna á Treyjudeginum

Leikmenn meistaraflokka kvenna og karla í knattspyrnu gengu um liðna helgi inn á leikvelli landsins í fjölbreyttum knattspyrnutreyjum. Tilefnið var Treyjudagurinn, árlegt átaksverkefni til að vekja athygli á málefnum krabbameinssjúkra barna. ÍA nýtti tækifærið til að heiðra Gleðistjörnuna, góðgerðarfélag sem stofnað var til minningar um Þuríði Örnu Óskarsdóttur. Þuríður lést árið 2023 eftir langa og harða baráttu við krabbamein. Hún greindist aðeins tveggja ára gömul og glímdi við sjúkdóminn í 18 ár.