Ný sóttvarnalög hafa tekið gildi

Ný sóttvarnalög tóku gildi í gær, 1. september, og leysa af hólmi lög sem gilt hafa frá árinu 1997. Lögin voru samþykkt á Alþingi í apríl eftir umfangsmikla endurskoðun og byggja meðal annars á reynslu af COVID-19 faraldrinum. Markmið laganna er áfram að vernda líf og heilsu fólks gegn smitsjúkdómum en jafnframt að skýra ábyrgð, samhæfingu og ákvarðanatöku stjórnvalda þegar alvarlegar farsóttir eða aðrar heilbrigðisógnir koma upp.

Ný sóttvarnalög hafa tekið gildi - Skessuhorn