Ræða líðan og tengsl ungmenna á Snæfellsnesi

Barnaheill og Geðhjálp heimsækja Snæfellsnes mánudaginn 7. september þar sem sjónum verður beint að líðan ungmenna, samskiptum þeirra og tengslum. Um kvöldið verður opinn fundur í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar sem niðurstöður samtals við ungmennin verða kynntar og rætt um hvernig samfélagið getur brugðist við.