
Vilhjálmur stýrimaður með rauðsprettur. Ljósm. af
Bátar á sjó og nýtt kvótaár hafið
Nýtt kvótaár í sjávarútvegi hófst í gær, 1. september, og tóku margir sjómenn gleði sína á ný eftir gott sumarfrí. Nokkrir bátar hófu sjósókn um miðjan ágúst eins og félagarnir á dragnótarbátnum Ólafi Bjarnarsyni SH frá Ólafsvík, sem landaði 23 tonnum í gær eftir tvo daga. Var uppistaða aflans koli auka annarra tegunda.