Fréttir

true

AFS leitar að fósturfjölskyldum fyrir skiptinema

AFS á Íslandi eru sjálfboðaliðasamtök sem bjóða ungmennum á aldrinum 15-18 ára að fara í skiptinám til erlendra ríkja, auk þess að taka á móti erlendum skiptinemum hingað til lands. AFS á Íslandi leitar nú að fleiri fósturfjölskyldum fyrir erlenda skiptinema sem koma til landsins 14. ágúst nk. Enn vantar heimili fyrir 14 ungmenni og…Lesa meira

true

Gufuá reddaði geðheilsunni

„Já, þetta var skyndiákvörðun hjá okkur Sigurjóni og við hentumst upp í Borgarfjörð í Gufuá,“ sagði Jógvan Hansen sem var búinn að fá nóg að endalausri rigningu í bænum og skrapp til veiða í gær, en flestar ár á leiðinni voru eins og stórfljót, eftir miklar rigningar að undanförnu. „Árnar voru vatnsmiklar á leiðinni sem…Lesa meira

true

Fyrirlestur um Þórð Kristleifsson – söngmann, kórstjóra og ljóðaþýðanda

Snorrastofa mun á Reykholtshátíð bjóða upp á fyrirlestur dr. Bjarka Sveinbjörnssonar tónlistarfræðings sem hann nefnir: „Hann vildi aldrei hætta við neitt hálfklárað, hann Þórður.“ Dagskráin verður í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti laugardaginn 25. júlí kl. 13 og er hluti af viðburðaröðinni Fyrirlestrar í héraði. Bjarki mun rekja söngnám Þórðar um sjö ára skeið í Þýskalandi…Lesa meira

true

Átta laxar og einn sjóbirtingur

„Við vorum að klára í Flekkudalsá og hollið veiddi átta laxa og einn sjóbirting, misstum helling af fiski, þetta var bara fínt,“ sagði Anna Lea Friðriksdóttir sem var að hætta veiðum í hádeginu í gær. „Það var mikið vatn eftir miklar rigningar, en fiskurinn var lítið að sýna sig. En laxinn virðist vera kominn á…Lesa meira

true

Víkingurinn kemur á Snæfellsnes um helgina

Aflraunakeppni sterkustu manna landsins, Víkingurinn 2026, fer fram dagana 24.–26. júlí. Tvær af keppnisgreinum mótsins verða haldnar við Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 25. júlí klukkan 18. Keppnin hefur verið haldin árlega um áratugaskeið og hefur Snæfellsbær jafnan verið einn af keppnisstöðunum. Að þessu sinni munu keppendur etja kappi í bóndagöngu og greininni „kastað yfir vegg“ við kirkjuna.…Lesa meira

true

Unnið að uppbyggingu og eflingu á byggðfestu í Dalabyggð

Dalabyggð hlaut í upphafi árs 23,5 milljóna króna styrki úr byggðaáætlun til tveggja metnaðarfullra verkefna sem ætlað er að efla nýsköpun, atvinnuþróun og byggðafestu í sveitarfélaginu. Sótt var um styrkina í gegnum Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), sem hafa umsjón með verkefnunum í samstarfi við Dalabyggð. Stærri styrkurinn, 13,5 milljónir króna, rennur til uppbyggingar Auðarstofu,…Lesa meira

true

Nýr hoppubelgur fyrir börnin við Baulu í Borgarfirði

Ferðasumarið er nú vel á veg komið og fyrir marga er söluskálinn Baula í Borgarfirði vinsæll viðkomustaður á leið um Vesturland. Nú er enn betri ástæða til að stoppa þar því nýr hoppubelgur fyrir yngstu ferðalangana var tekinn í notkun í síðustu viku og hefur þegar slegið í gegn. „Með stoppi í Baulu geta viðskiptavinir…Lesa meira

true

Baldur á leiðinni heim á Breiðafjörðinn

„Það er okkur ánægja að tilkynna að við höfum nú fengið staðfest að Baldur ljúki störfum í Vestmannaeyjum rétt fyrir miðnætti í kvöld og sigli þaðan heim til Stykkishólms. Baldur mun sigla samkvæmt áætlun frá og með föstudeginum 24. júlí,“ segir Gísli Jóhann Eysteinsson framkvæmdastjóri Ferjuleiða. „Um leið og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum…Lesa meira

true

Borgarverk átti lægsta boð í nýtt hringtorg

Vegagerðin fékk tvö tilboð í verkið „Akrafjallsvegur (51) – hringtorg við Akranes,“ sem opnað var í dag. Framkvæmdin felur í sér gerð hringtorgs á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi á Akranesi um Lækjarskóga. Jafnframt verður byggð staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg ásamt nýjum göngu- og hjólastígum sem tengjast undirgöngunum. Verkið er eitt…Lesa meira

true

Deiliskipulag fyrir Þórisstaði auglýst

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi fyrir Þórisstaði og Þórisstaði II. Ákvörðunin var tekin á fundi sveitarstjórnar 9. júlí sl. og byggir á því að meginforsendur skipulagsins liggi þegar fyrir í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032. Auglýsing þar að lútandi birtist í Skessuhorn í dag. Deiliskipulagið nær til um 84 hektara svæðis þar sem gert er…Lesa meira