Fréttir

true

Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar

Í gær kom björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, sjöunda af nýjum björgunarskipum Landsbjargar, til heimahafnar á Vopnafirði. Tekið var á móti skipinu og áhöfn þess með kostum og kynjum á bryggjunni. Skipið er það sjöunda í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áður eru komin til landsins; Guðmundur í Tungu á Ísafirði, Ingibjörg á Höfn í Hornafirði, Björg í Rifi,…Lesa meira

true

Tekið hraustlega á því á aflraunamótinu Fjallkonunni

Það voru mikil átök sem áttu sér stað á Snæfellsnesi þegar sjö ungar konur kepptu í aflraunarkeppninni Fjallkonan 2026. Tvær þeirra duttu út vegna meiðsla. Keppnin hófst í Stykkishólmi á laugardag og var svo fram haldið í Ólafsvík seinni parts laugardags með einni keppnisgrein. Í gær var svo haldið áfram í Ólafsvík þar sem var…Lesa meira

true

Guðmundur Kristjánsson kaupir Þórsnes í Stykkishólmi

Gunnlaugur Karl Hreinsson hjá GPG fiskverkum á Húsavík festi árið 2004 kaup á sjávarútvegsfyrirtækinu Þórsnesi ehf. í Stykkishólmi og hefur átt stærstan hlut þess síðan. Einhverjum árum síðar kaupir Eggert Halldórsson framkvæmdastjóri 15% hlut í fyrirtækinu, en hann hefur stýrt því frá 2004. Nú er búið að ganga frá kaupum félags í eigu Guðmundar Kristjánssonar…Lesa meira

true

Ný Icewear verslun opnuð í Stykkishólmi

Ný Icewear verslun var opnuð í Stykkishólmi fimmtudaginn 11. júní. Verslunin er sú 35. í röðinni hjá fyrirtækinu og er staðsett við höfnina í því húsnæði þar sem ferðaþjónustufyrirtækið Sæferðir var áður til húsa. Undirbúningur gekk hratt fyrir sig en teymi frá Icewear hóf uppsetningu verslunarinnar síðastliðinn mánudag. Á fáum dögum var húsnæðinu breytt í…Lesa meira

true

Met þátttaka á Héðinsmótinu í bekkpressu

Héðinsmótið í bekkpressu var haldið í Íþróttahúsinu í Ólafsvík síðastliðinn laugardag og voru 18 keppendur mættir til leiks og keppt í fjórum flokkum. Fjölmargir áhorfendur mættu til að hvetja keppendur áfram og var mikill stemning og hvatningarhróp sem meðal annars átti stóran þátt í að Arek Lakomski sem keppti í +100 kílóa flokki setti mótsmet…Lesa meira

true

SVFR tekur við sölu veiðileyfa í Reykjadalsá

Stangveiðifélag Reykjavíkur og Veiðifélag Reykjadalsár í Borgarfirði hafa hafið samstarf um sölu veiðileyfa í ánni, en hún er tveggja stanga laxveiðiá sem nýlegu veiðihúsi. „Framundan eru jákvæðar breytingar sem miða að því að styrkja laxastofninn til framtíðar. Meðal annars verður dregið úr veiðiálagi, aukin áhersla lögð á fiskrækt og búsvæði seiða bætt,“ segir í tilkynningu.…Lesa meira

true

Fjölmennasta útskrift í sögu Háskólans á Bifröst

Aldrei í sögu Háskólans á Bifröst hefur annars eins fjöldi verið útskrifaður og síðastliðinn laugardag við athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Alls voru 279 háskólanemendur brautskráðir; 39 nemendur úr Háskólagátt, 65 úr grunnnámi og 175 úr meistaranámi. Ef litið er til deildaskiptingar þá brautskráðust alls 59 nemendur frá félagsvísindadeild, 25 frá lagadeild og 156 frá…Lesa meira

true

Jón Þór tekur við Stjörnunni

Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson er nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta. Hann tekur við liðinu af Jökli Elísabetarsyni sem var látinn fara daginn áður. Stjarnan er nú í níunda sæti Bestu deildarinnar og dottin úr bikarnum eftir tap gegn Aftureldingu á miðvikudag. Jón Þór þekkir vel til hjá Stjörnunni en hann starfaði áður hjá félaginu…Lesa meira

true

Kjarará var opnuð í morgun

Laxveiðin fer vel af stað þó svo tveggja ára laxinn mætti vera í meira mæli í byrjun. „Opnunarhollið í Þverá gaf 25 laxa og það er fínt,“ sagði Aðalsteinn Pétursson við Þverá nú um helgina en Kjarará verður opnuð í dag og verður spennandi að sjá hvernig veiðin byrjar þar. Straumarnir í Borgarfirði hafa gefið…Lesa meira

true

Kári og Selfoss skiptu með sér stigum

Knattspyrnufélagið Kári tók á móti Selfossi í leik í annarri deildinni í síðustu viku. Káramenn áttu góða endurkomu eftir að hafa lent 0-2 undir gegn Selfyssingum. Árni Salvar minnkaði muninn á 80. mínútu með hörkuskalla og Sigurjón Logi jafnaði metin á 86. mínútu eftir frábæra sókn. Úrslit dagsins þýða að Káramenn halda 2. sæti í…Lesa meira