
Þröng mega sáttir sitja – og standa. Ljósm. Bifröst
Fjölmennasta útskrift í sögu Háskólans á Bifröst
Aldrei í sögu Háskólans á Bifröst hefur annars eins fjöldi verið útskrifaður og síðastliðinn laugardag við athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Alls voru 279 háskólanemendur brautskráðir; 39 nemendur úr Háskólagátt, 65 úr grunnnámi og 175 úr meistaranámi. Ef litið er til deildaskiptingar þá brautskráðust alls 59 nemendur frá félagsvísindadeild, 25 frá lagadeild og 156 frá viðskiptadeild. Þar af voru 208 konur og 71 karl.