
Í vikunni sem leið voru 106 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Auk þeirra voru 513 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Þrír ökumenn voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Níu…Lesa meira








