
Hraðakstur og aðrar sektir
Í vikunni sem leið voru 106 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Auk þeirra voru 513 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Þrír ökumenn voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Níu ökumenn voru stöðvaðir og sektaðir fyrir að nota farsíma við akstur og eigendur 22 bifreiða voru sektaðir vegna ólöglegrar lagningar þeirra. Skráningarmerki voru fjarlægð af fjórum ökutækjum, ýmist vegna vanrækslu á skoðun eða vangreiddum tryggingum. Sjö voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur.