
Kristinn Jónasson bæjarstjóri er hér að fara yfir skipulag Snæfellsbæjar vegna viðburðarins 12. ágúst. Ljósm. aðsend
Stýrihópur vegna almyrkva heimsótti Vesturland
Markaðsstofa Vesturlands skipulagði vettvangsferð á Vesturlandi fyrir stýrihóp Stjórnarráðsins vegna almyrkvans 12. ágúst í sumar. Hlutverk stýrihópsins er að afla upplýsinga og hafa yfirsýn yfir verkþætti sem tengjast atburðinum og tryggja samræmda nálgun og upplýsingagjöf ráðuneyta og stofnana auk sveitarfélaga.