Eyjólfur Andrésson í Síðumúla og Aðalsteinn Pétursson með einn af fyrstu löxum sumarsins úr Þverá.

Níu laxar í opnun Þverár í morgun

„Þetta byrjaði vel. Það komu níu laxar á land í morgun og við Andrés fengum þrjá þeirra. Kirkjustrengurinn gaf vel,“ sagði Aðalsteinn Pétursson við opnun Þverár nú í morgun. Hver laxveiðiáin af annarri opnar þessa dagana og fyrstu dagarnir virðast almennt vera að gefa vel.