Listamaðurinn við húshornið og verkið fullskapað.

Nýtt listaverk orðið til á Akranesi

Síðdegis í dag lauk listamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, Baski, við gerð málverks á gafli húss sem Eymar Einarsson fyrrum útgerðarmaður á á Breiðinni á Akranesi. Að sögn Baska kostaði Eymar gerð verksins, en á því gefur að líta Ebba AK-37 sem Eymar gerði út lengi. Verkið sem er í anda fyrri verka listamannsins sómir sér vel á húsgaflinum og gleður augu þeirra sem aka niður á Breið.