Ferjuna til baka ella segi ráðherra af sér

Hrundið hefur verið af stað undirskriftasöfnun á island.is undir yfirskriftinni: „Ferjuna Baldur strax til baka í Breiðafjörð.“ Nú þegar hefur á sjötta hundrað skrifað undir áskorunina, en hún verður opin til 15. júní. Ábyrgðarmaður er Óskar Eyþórsson. Yfirskrift söfnunarinnar er þannig: „Við sem skrifum undir þennan lista krefjumst þess að ákvörðun um að taka ferjuna úr siglingum um Breiðafjörð frá 8. júní 2026 verði umsvifalaust breytt, eða innviðaráðherra Eyjólfur Ármannsson þingmaður NV kjördæmis segi af sér enda ófær um að verja hagsmuni kjördæmisins.“

Björn Samúelsson vélstjóri í Flatey er meðal þeirra sem mótmæla harðlega þessum gjörningi. „Markmið okkar íbúa beggja vegna Breiðafjarðar og í Flatey er að safna yfir 3.000 undirskriftum, en það er svipaður fjöldi og atkvæðin sem Flokkur fólksins fékk við síðustu alþingiskosningar í Norðvesturkjördæmi og tryggði Eyjólfi þingsetu. Við sættum okkur ekki við þann gjörning Eyjólfs að taka Baldur úr siglingum yfir Breiðafjörð til að þjóna hagsmunum eyjaskeggja í Vestmannaeyjum sem vilja halda stærri íþróttamót. Á sama tíma er ferðaþjónustan í Vesturbyggð að upplifa fjölda afpantanir á hótelum og mjög alvarlegt ástand að teiknast þar upp. Það þarf að stöðva svona vitleysisgang,“ segir Björn í samtali við Skessuhorn.