Fréttir

true

Opið hús í lok afmælisárs Toska

Það var líf og fjör í Tónlistarskóla Akraness í gær á opnu húsi. Spilað var á ýmis hljóðfæri og sungið, áhugasamir fengu að grípa í ýmis hljóðfæri og gestir fengu hressingu. Þá var hægt að skrá sig í nám við skólann næsta haust. Hátíðin markaði lok sjötíu ára afmælisárs skólans, sem ítarlega hefur verið fjallað…Lesa meira

true

Héldu síðasta hreppsnefndarfundinn

Síðdegis í gær urðu tímamót þegar hreppsnefnd Skorradalshrepps hélt sinn síðasta fund. Eins og kunnugt er var sveitarfélagið sameinað Borgarbyggð og tekur sameining gildi næstkomandi mánudag. Þrátt fyrir að um tímamótafund væri að ræða var fjölmargt til umræðu og afgreiðslu á fundinum, sem stóð í hálfa fimmtu klukkustund. Ársreikningur sveitarsjóðs var staðfestur eftir síðari umræðu,…Lesa meira

true

Atvinnuleysi mælist 5,8%

Í apríl á þessu ári voru 13.500 atvinnulausir í landinu, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,8%, hlutfall starfandi var 75,4% og atvinnuþátttaka 80%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,5 prósentustig á milli mars og apríl 2026, hlutfall starfandi stóð í stað og atvinnuþátttaka dróst saman um 0,5 prósentustig.Lesa meira

true

Ferming í Grundarfjarðarkirkju

Á Hvítasunnudag var ferming í Grundarfjarðarkirkju en tvær fermingarmessur voru þetta árið. Á skírdag voru fjögur ungmenni fermd og á sunnudaginn voru svo sjö að auki. Þetta voru fyrstu ungmennin sem séra Karen Hjartardóttir fermir en hún var sett í embætti síðasta haust.Lesa meira

true

„Ég held það sé bara í mér einhver sköpunarkraftur“

Rætt við listakonuna Jósefínu Morell Þegar gengið er inn í vinnustofu Jósefínu Morell, sem er heima hjá henni í Hvalfjarðarsveit, blasir við fallegt og bjart sköpunarrými, stútfullt af málverkum á öllum stigum vinnslu. Á víð og dreif má sjá gamlar hurðir, glugga og steina sem Jósefína fann sjálf eða fékk sent frá viðskiptavinum til skreytingar.…Lesa meira

true

Þrjú sveitarfélög á höttunum eftir sveitarstjórum

Strax eftir að úrslit sveitarstjórnarkosninganna 16. maí síðastliðinn lágu fyrir var ljóst hverjir myndu setjast í stóla bæjar- og sveitarstjóra í nokkrum sveitarfélögum á Vesturlandi. Í Snæfellsbæ verður Kristinn Jónasson áfram við völd og Jakob Björgvin S Jakobsson í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Í Grundarfirði hefur verið gengið frá ráðningu Birkis Jóns Jónssonar í starf bæjarstjóra og…Lesa meira

true

Myndlistarkennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands vinnur til verðlauna

Það bar til tíðinda að Angela Árnadóttir, myndlistarkennari við Fjölbrautskóla Vesturlands á Akranesi, sigraði í keppni sem jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands stóð fyrir á dögunum. Af því tilefni var efnt til innanhússkeppni í jafnréttisverkum nemenda við skólann. Átta dómarar úr röðum starfsfólks FVA voru fengnir til að leggja mat á fjögur verkefni sem kepptu til úrslita.…Lesa meira

true

Tónlistarskólinn á Akranesi 70 ára – en öflugur og síungur – afmælishátíð í dag

Í Tónlistarskólanum á Akranesi er mjög öflugt starf, en þar eru að jafnaði um 350 nemendur, flestir af Akranesi en einnig er skólinn með samstarfssamning við Hvalfjarðarsveit. Starfið núna afmælisveturinn 2025-26 hefur verið mjög líflegt og fjölbreytt. Fljótlega eftir skólabyrjun var haldið stórt strengjamót á Akranesi þar sem nemendur, kennarar og foreldrar tóku vikan þátt…Lesa meira

true

Útibú Landsbankans í Snæfellsbæ fagnaði 50 árum – myndir

Blásið var til veislu í útibúi Landsbankans í Snæfellsbæ í gær, þriðjudaginn 26. maí. Fimmtíu ár eru nú liðin frá opnun og ástæða til að fagna. Stjórnendur bankans komu í heimsókn og Eyþór Ingi mætti og tók nokkur lög. Glæsilegar veitingar voru á boðstólnum í tilefni dagsins og margir sem kíktu í heimsókn.Lesa meira

true

Líf að færast í Kolgrafafjörðinn

Fyrir fimmtán til tuttugu árum var mikil mótorkrossmenning í Grundarfirði og margir sem áttu slík tæki. Þá tók sig til hópur manna sem útbjó mótorkrossbraut í Kolgrafafirði sem var sæmilegasta framkvæmd. Svo fjaraði töluvert undan notkun á brautinni og nú hefur hún verið lítið notuð undanfarin misseri og farin að láta á sjá. Nú er…Lesa meira