Hvítárbrú í Borgarfirði. Ljósm. mm

Þrjú sveitarfélög á höttunum eftir sveitarstjórum

Strax eftir að úrslit sveitarstjórnarkosninganna 16. maí síðastliðinn lágu fyrir var ljóst hverjir myndu setjast í stóla bæjar- og sveitarstjóra í nokkrum sveitarfélögum á Vesturlandi. Í Snæfellsbæ verður Kristinn Jónasson áfram við völd og Jakob Björgvin S Jakobsson í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Í Grundarfirði hefur verið gengið frá ráðningu Birkis Jóns Jónssonar í starf bæjarstjóra og Bjarki Þorsteinsson flytur sig um set úr Dalabyggð og yfir í Hvalfjarðarsveit. Ný hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps hefur ekki komið saman frá kosningum. Í þremur sveitarfélögum; Dalabyggð, Sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og í Akraneskaupstað var ákveðið að handvelja án auglýsingar nokkur nöfn til viðræðna um að taka að sér starf bæjar- eða sveitarstjóra. Samkvæmt heimildum Skessuhorns standa viðræður enn yfir við vænleg sveitarstjóraefni í þessum þremur sveitarfélögum.