Angela Árnadóttir myndlistarkennari og fjöllistakona við eitt verka sinna sem heitir Vor. Ljósm. óhk

Myndlistarkennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands vinnur til verðlauna

Það bar til tíðinda að Angela Árnadóttir, myndlistarkennari við Fjölbrautskóla Vesturlands á Akranesi, sigraði í keppni sem jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands stóð fyrir á dögunum. Af því tilefni var efnt til innanhússkeppni í jafnréttisverkum nemenda við skólann. Átta dómarar úr röðum starfsfólks FVA voru fengnir til að leggja mat á fjögur verkefni sem kepptu til úrslita. Verkefni dómnefndar var ekki einfalt, enda gríðarlega metnaðarfullt og fjölbreytt verkefni um að ræða. Niðurstaða dómnefndar var að ljósmyndaserían „Heimþrá“ bar sigur úr býtum. Í umsögn dómnefndar kom fram að nálgun verkefnisins hafi verð áhrifarík og öðruvísi og tenging við jafnréttið mjög sterkt. Sterk listræn útfærsla sem fær fólk til að hugsa. Í öru sæti var „Snákaspilið – fæðingarorlofsútgáfan“. Dómnefnd fannst spilið vera vel útfært og fara með spilara beint í kerfi fæðingarorlofs, þroskað verkefni með skýrt jafnréttisgildi. Jafnrétti er sífellt baráttumál sem Angela hefur af krafti og eldmóði gert að stórum og lærdómsríkum listviðburði hér í skólanum og hrifið nemendur með sér. Blaðamaður Skessuhorns hitti Angelu og ræddi við hana um listina og lífið – og þennan merka árangur.