
Forskólakrakkar sungu. Ljósm. Kolla Ingvars
Opið hús í lok afmælisárs Toska
Það var líf og fjör í Tónlistarskóla Akraness í gær á opnu húsi. Spilað var á ýmis hljóðfæri og sungið, áhugasamir fengu að grípa í ýmis hljóðfæri og gestir fengu hressingu. Þá var hægt að skrá sig í nám við skólann næsta haust. Hátíðin markaði lok sjötíu ára afmælisárs skólans, sem ítarlega hefur verið fjallað um í Skessuhorni undanfarna mánuði.