
Hreppsnefnd Skorradalshrepps áður en síðasti fundur nefndarinnar hófst. F.v. Óli Rúnar Ástþórsson, Pétur Davíðsson, Jón Eiríkur Einarsson, Guðný Elíasdóttir og Kristín Jónsdóttir. Ljósm. mm
Héldu síðasta hreppsnefndarfundinn
Síðdegis í gær urðu tímamót þegar hreppsnefnd Skorradalshrepps hélt sinn síðasta fund. Eins og kunnugt er var sveitarfélagið sameinað Borgarbyggð og tekur sameining gildi næstkomandi mánudag. Þrátt fyrir að um tímamótafund væri að ræða var fjölmargt til umræðu og afgreiðslu á fundinum, sem stóð í hálfa fimmtu klukkustund. Ársreikningur sveitarsjóðs var staðfestur eftir síðari umræðu, nokkur skipulagsmál voru til umræðu og afgreiðslu sem og neysluvatnsmál í Birkimóa.