
Stjórnendur bankans ásamt starfsmönnum útibúsins í Ólafsvík. Ljósm. tfk
Útibú Landsbankans í Snæfellsbæ fagnaði 50 árum – myndir
Blásið var til veislu í útibúi Landsbankans í Snæfellsbæ í gær, þriðjudaginn 26. maí. Fimmtíu ár eru nú liðin frá opnun og ástæða til að fagna. Stjórnendur bankans komu í heimsókn og Eyþór Ingi mætti og tók nokkur lög. Glæsilegar veitingar voru á boðstólnum í tilefni dagsins og margir sem kíktu í heimsókn.