Fréttir

true

Sveitarstjórnarfulltrúar í Hvalfjarðarsveit

Tveir listar voru í boði í Hvalfjarðarsveit að þessu sinni; A listi Samhentrar sveitar og Í listi Íbúahreyfingarinnar. Á kjörskrá voru 657 og atkvæði greiddu 507, eða 77,2%. Auðir seðlar voru 17 og ógildir fjórir. A-listi Samhent sveit hlaut fimm fulltrúa, fékk 336 atkvæði og 69,1% fylgi, en Í-listi Íbúahreyfingarinnar hlaut tvo fulltrúa, fékk 150…Lesa meira

true

Þau setjast í bæjarstjórn í Stykkishólmi

H listi Framfarasinna hélt meirihluta sínum í Sveitarfélaginu Stykkishólmi og fékk raunar fleiri atkvæði en fyrir fjórum árum. Hann hlaut nú 60,2% fylgi og fjóra bæjarfulltrúa. Íbúalistinn fékk 39,8% og þrjá bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúar verða: Björn Ásgeir Sumarliðason, Steinunn I. Magnúsdóttir, Mattías Arnar Þorgrímsson og Þórhildur Eyþórsdóttir frá H lista. Frá Í lista setjast í bæjarstjórn:…Lesa meira

true

Viðhorf til sameiningar kannað í Eyja- og Miklaholtshreppi

Samhliða kosningu nýrrar hreppsnefndar í Eyja- og Miklaholtshreppi í gær var lögð fram skoðanakönnun um áhuga fólks fyrir sameiningu við önnur sveitarfélög. 53 kjósendur, 16 ára og eldri, tóku þátt í könnuninni. Einn seðill var auður. Niðurstaðan var býsna afgerandi. Þegar spurt var: „Ætti Eyja- og Miklaholtshreppur að hefja sameiningarviðræður,“ svöruðu 42 því játandi, einn…Lesa meira

true

Ný sveitarstjórn kjörin í Dalabyggð

Í Dalabyggð var viðhaft persónukjör við kosningarnar á laugardaginn þar sem engir framboðslistar bárust. Kjörsókn að þessu sinni var með minnsta móti, eða 54,87%. Eftirtaldir hlutu kjör sem aðalmenn í sveitarstjórn Dalabyggðar 2026-2030: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir 248 atkvæði Guðbrandur Tumi Gíslason 238 atkvæði Ingveldur Guðmundsdóttir 228 atkvæði Skjöldur Orri Skjaldarson 222 atkvæði Guðlaug Kristinsdóttir 192…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkurinn í lykilstöðu í Borgarbyggð

Miklar sviptingar urðu í kosningunum í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Í Borgarbyggð hafði Framsóknarflokkur hreinan meirihluta á liðnu kjörtímabili, fimm fulltrúa í sveitarstjórn með tæplega helmings fylgi á bak við sig. Flokkurinn tapaði helmingi þess fylgis nú, fékk 25,36%, og tvo fulltrúa í sveitarstjórn. Sjálfstæðisflokkur jók fylgi sitt frá síðustu kosningum, fékk 29,26% nú…Lesa meira

true

Meirihlutinn hélt velli á Akranesi – allir flokkar fá fulltrúa

Þegar lokatölur lágu fyrir í kosningunum til bæjarstjórnar á Akranesi í nótt var ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í bæjarfélaginu með 33,6% fylgi og heldur þremur bæjarfulltrúum. Samfylking og Framsóknarflokkur tapa báðir fylgi frá síðustu kosningum og missa einn fulltrúa hvor flokkur. Framsókn með frjálsum fékk 23,6% og Samfylking 22,3%. Tveir nýir flokkar buðu fram…Lesa meira

true

Framsókn og félagshyggjufólk sigurvegari í Grundarfjarðarbæ

Miklar sviptingar urðu í kosningunum í Grundarfirði, en talningu atkvæða er nú lokið. Þar buðu tvö framboð fram; Framsókn og félagshyggjufólk (B) og Sjálfstæðismenn og óháðir (D). Úrslit kosninganna urðu þau að B listi hlaut 252 atkvæði en D listi 199. Fimm atkvæði voru ógild og 15 auð. B listi verður því með fjóra bæjarfulltrúa…Lesa meira

true

Samhent sveit með fimm manna meirihluta í Hvalfjarðarsveit

Talningu atkvæða í Hvalfjarðarsveit liggur nú fyrir. Tveir listar voru í boði; A listi Samhentrar sveitar og Í listi Íbúahreyfingarinnar. Á kjörskrá voru 657 og atkvæði greiddu 507, eða 77,2%. Auðir seðlar voru 17 og ógildir fjórir. A-listi Samhent sveit hlaut 5 fulltrúa, fékk 336 atkvæði Í-listi Íbúahreyfingin hlaut 2 fulltrúa, fékk 150 atkvæði. Kjörnir…Lesa meira

true

Niðurstaða kosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi

Búið er að telja atkvæði í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, en þar fór fram persónukjör. Á kjörskrá voru 83 og var kjörsókn 77%. Tveir seðlar voru auðir og einn ógildur. Aðalmenn í sveitarstjórn verða: Guðbjörg Gunnarsdóttir (37 atkv.), Eggert Kjartansson (31), Veronika G Sigurvinsdóttir (29), Þröstur Aðalbjarnarson (29) og Sigurbjörg Ottesen (29). Varamenn verða…Lesa meira