Svipmynd frá 2. kjördeild á Akranesi en kosið var í Grundaskóla að þessu sinni.

Meirihlutinn hélt velli á Akranesi – allir flokkar fá fulltrúa

Þegar lokatölur lágu fyrir í kosningunum til bæjarstjórnar á Akranesi í nótt var ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í bæjarfélaginu með 33,6% fylgi og heldur þremur bæjarfulltrúum. Samfylking og Framsóknarflokkur tapa báðir fylgi frá síðustu kosningum og missa einn fulltrúa hvor flokkur. Framsókn með frjálsum fékk 23,6% og Samfylking 22,3%. Tveir nýir flokkar buðu fram að þessu sinni og fá sinn hvorn bæjarfulltrúann; Viðreisn hlaut 10,7% og Miðflokkurinn 9,7%.

Þessar niðurstöður sýna að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar geta myndað meirihluta í bæjarstjórn með fimm fulltrúa, en flokkarnir höfðu sex í fráfarandi bæjarstjórn. Þrír stærstu flokkarnir töpuðu allir fylgi frá síðustu kosningum.

Bæjarfulltrúar verða: Líf Lárusdóttir, Bjarnheiður Hallsdóttir og Guðmundur Ingþór Guðjónsson frá Sjálfstæðisflokki, Ragnar B Sæmundsson og Liv Ása Skaarstað frá Framsókn með frjálsum, Sigurður Vopni og Jónína Margrét Sigmundsdóttir frá Samfylkingu, Jón Guðni Guðmundsson frá Viðreisn og Hrafn Ágúst Björnsson frá Miðflokki.

Meirihlutinn hélt velli á Akranesi – allir flokkar fá fulltrúa - Skessuhorn