
Framsókn og félagshyggjufólk sigurvegari í Grundarfjarðarbæ
Miklar sviptingar urðu í kosningunum í Grundarfirði, en talningu atkvæða er nú lokið. Þar buðu tvö framboð fram; Framsókn og félagshyggjufólk (B) og Sjálfstæðismenn og óháðir (D). Úrslit kosninganna urðu þau að B listi hlaut 252 atkvæði en D listi 199. Fimm atkvæði voru ógild og 15 auð. B listi verður því með fjóra bæjarfulltrúa en D listi þrjá.
Bæjarstjóraefni B lista er Birkir Jón Jónsson fv. alþingismaður.