
Frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórna rann út á hádegi í dag, 10. apríl. Samkvæmt lögum er viðhaft persónukjör berist ekki framboðslisti. Sú verður raunin í Dalabyggð. Þar eru fjórir fyrrum sveitarstjórnarfulltrúar sem gátu skv. lögum skorast undan endurkjöri; þau Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Halla Sigríður Steinólfsdóttir, Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Þuríður Jóney Sigurðardóttir.…Lesa meira








