Fréttir

true

Endurnýjun lýsingar í Hvalfjarðargöngum

Vegagerðin segir um nauðsynlega framkvæmd að ræða til að bæta öryggi Vegagerðin vill koma á framfæri upplýsingum vegna lokana í Hvalfjarðargöngum, en göngin verða lokuð á kvöldin næstu vikurnar frá klukkan 21:30 til kl. 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna, vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu. Áætlað er að verkinu ljúki 29. maí. Einungis neyðarakstur verður leyfður…Lesa meira

true

Steinar tekur við sem bæjarstjóri

Bæjarstjórn Akraness og Haraldur Benediktsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Haraldar sem bæjarstjóra Akraneskaupstaðar frá og með deginum í dag. „Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs og staðgengill bæjarstjóra verður starfandi bæjarstjóri fram yfir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 16. maí næstkomandi. Um er að ræða sameiginlega ákvörðun Haraldar og bæjarstjórnar enda var bæjarstjórn kunnugt…Lesa meira

true

A listi Samhentrar sveitar býður fram í Hvalfjarðarsveit

Á hádegi í dag rann úr frestur til að skila inn framboðum vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Í sveitarfélaginu Hvalfjarðarsveit var Íbúalistinn búinn að skila inn framboðsgögnum. Klukkan 11 var kjörstjórn á fundi og tók við framboðum. Eitt til viðbótar barst og var það í nafni A lista, Samhentrar sveitar. Oddviti listans er Haraldur Benediktsson bóndi…Lesa meira

true

Haraldur lætur í dag af starfi bæjarstjóra

Í yfirlýsingu sem Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi var að senda kemur fram að í dag lætur hann af starfi bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, en starfinu hefur hann gegnt undanfarin þrjú ár. „Ástæðan fyrir þessum vistaskiptum nú er að ég er í framboði til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar frá og með deginum í dag. Mig langar að nota reynslu…Lesa meira

true

Jarðhitaleit á Akranesi frestast til haustsins

Akraneskaupstaður hefur auglýst ákvörðun bæjarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis til Veitna vegna rannsóknarborunar eftir heitu vatni við Jaðarsbraut á Akranesi. Tekið er fram að kærufrestur vegna framkvæmdarinnar er fjórar viku frá og með birtingu auglýsingar 8. apríl sl. Til stóð að borframkvæmdir hæfust í vor og lyki snemmsumars. Nú hafa Veitur staðfest í samskiptum við húsráðendur…Lesa meira

true

Anna Margrét ráðin skólastjóri Heiðarskóla

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samhljóða samþykkt tillögu ráðningarnefndar og velferðar- og fræðslunefndar þess efnis að ráða Önnu Margréti Tómasdóttur í starf skólastjóra grunnskólasviðs Heiðarskóla. Tekur hún við starfinu af Sigríði Láru Guðmundsdóttur fráfarandi skólastjóra 1. ágúst næstkomandi. Fram hefur komið í frétt Skessuhorns að ellefu sóttu um stöðuna sem auglýst var fyrr í vetur og voru…Lesa meira

true

Fleiri útlendingar en færri Íslendingar

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll námu um 155 þúsund í nýliðnum mars samkvæmt mælingum Ferðamálastofu, sem er 1,6% aukning frá mars 2025. Bandaríkjamenn og Bretar voru 42,7% brottfara. Brottfarir Íslendinga voru um 56 þúsund í mars, 3,6% færri en í sama mánuði árið áður.Lesa meira

true

Nýsköpun á landsbyggðinni í hugmyndahúsi Grósku

Nýsköpunarvikan 2026 verður haldin í Reykjavík dagana 28.-29. apríl nk. Um er að ræða alþjóðlegan viðburð (e.Iceland Innovation Week) þar sem fyrirtækjum og frumkvöðlum gefst kostur á að standa fyrir nýsköpunartengdum viðburðum, fyrirlestrum og uppákomum með mörgum snertiflötum. Fyrirlesarar á Nýsköpunarvikunni eru bæði innlendir og erlendir. Nýsköpun er þegar nýjar hugmyndir, lausnir eða vörur, eru…Lesa meira

true

Góður dagur í brekkunni við Bjarg

Eigendur ferðaþjónustubæjarins Bjargs í Borgarnesi sendu frá sér boð til bæjarbúa á föstudaginn langa um að koma og renna sér á sleðum í brekkunni við bæinn, þar sem enn var nóg af snjó. Það eru Heiður Hörn Hjartardóttir og Þorsteinn Arilíusson sem búa á Bjargi og hafa þau áður staðið fyrir svona viðburðum, bæjarbúum til…Lesa meira

true

Af umferð og óveðri

Í liðinni viku stöðvaði Lögreglan á Vesturlandi 45 ökumenn og kærði fyrir of hraðan akstur. Auk þess voru 212 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélum og hraðamyndavélabifreið við að aka of hratt. Einn var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Sá var einnig að aka bifreiðinni sviptur ökuréttindum. Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma við…Lesa meira