
Af umferð og óveðri
Í liðinni viku stöðvaði Lögreglan á Vesturlandi 45 ökumenn og kærði fyrir of hraðan akstur. Auk þess voru 212 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélum og hraðamyndavélabifreið við að aka of hratt. Einn var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Sá var einnig að aka bifreiðinni sviptur ökuréttindum. Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur.