Heiður Hörn er ættuð frá Bjargi, en þar hefur hennar fólk búið í nokkrar kynslóðir. Hún hefur ásamt Þorsteini manni sínum gætt þess að halda útliti bæjarins fallegu og upprunalegu og er hann sannkölluð bæjarprýði. Texti og myndir: GJ

Góður dagur í brekkunni við Bjarg

Eigendur ferðaþjónustubæjarins Bjargs í Borgarnesi sendu frá sér boð til bæjarbúa á föstudaginn langa um að koma og renna sér á sleðum í brekkunni við bæinn, þar sem enn var nóg af snjó. Það eru Heiður Hörn Hjartardóttir og Þorsteinn Arilíusson sem búa á Bjargi og hafa þau áður staðið fyrir svona viðburðum, bæjarbúum til mikillar gleði. Buðu þau gestum upp á heitt kakó og kex og skoruðu á mömmur og pabba, afa og ömmur, frænkur og frændur að mæta og rifja upp gamla takta við að renna sér. Mikil og góð stemning skapaðist í brekkunni og mál manna að um frábært og þakkarvert framtak væri að ræða. Ekki síst var það fjölskyldufólk sem mætti til að njóta útiverunnar.