Fréttir

true

Stólarnir völtuðu yfir Skagamenn

Karlalið ÍA í Bónusdeildinni í körfubolta tók á móti Tindastóli í gærkvöldi. Miðað við stöðu liðanna í deildinni mátti fyrirfram búast við að leikurinn yrði bakki fyrir þá gulklæddu á Jaðarsbökkum. Það reyndist og raunin. Jafnræði var þó með liðunum í fyrsta leikhluta, hvort lið gerði 23 stig. Eftir það voru það Skagfirðingarnir sem hreinlega…Lesa meira

true

Vetrarríki norðanlands – snjóflóðahætta og ófærð

Við Breiðafjörð er í dag gul viðvörun Veðurstofunnar. Það verður norðaustan 15-23 m/s og skafrenningur eða snjókoma með köflum, úrkomumest norðantil. Slæmt skyggni og líkur á versnandi færð. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Vestfjörðum og Norðurlandi (sjá nánar vef Veðurstofunnar). Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir: „Norðaustan stórhríð á Vestfjörðum í dag með tilheyrandi ófærð. Erfið…Lesa meira

true

Bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti

Borgfirðingurinn Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir bætti í dag eigið Íslandsmet í sleggjukasti á Evrópubikarmóti á Kýpur þegar hún kastaði 71,41 metra. Ruv.is greindi frá. Þetta er bæting hjá henni á Íslandsmeti frá síðasta sumri um þrjá sentimetra. Varð hún önnur í keppninni á eftir Katrine Jacobsen frá Danmörku sem kastaði 75,52 metra, sem er lengsta kast…Lesa meira

true

Brjálað veður á heiðinni og Heiðar til aðstoðar

Undanfarna tvo daga hefur gert slæmt veður og færð á Holtavörðuheiði. Ökumenn hafa þrátt fyrir vafasamar aðstæður lagt á heiðina. Björgunarsveitin Heiðar, sem kennd er við Hrein Heiðar Árnason sem varð úti á heiðinni við smalamennskur í september 1972, er jafnan send á vettvang ef koma þarf vegfarendum á heiðinni til aðstoðar. Á fimmtudag og…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin töpuðu sínum leikjum

Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Í tveimur þeirra komu liðin af Vesturlandi við sögu. Snæfell sótti Fjölni heim. Fyrstu hrinuna unnu gestirnir með 29 stigum gegn 27, en eftir það sáu þeir vart til sólar. Önnur hrina var Fjölnismanna sem unnu hana 41-17 og þriðju hrinuna 29-16. Lokahrinan…Lesa meira

true

Varað við norðaustan snjókomu og skafrenningi

Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir spásvæðin Breiðafjörð, Norðurland vestra og Vestfirði frá því í fyrramálið og fram til kl. 20 annað kvöld. Við Breiðafjörð verður norðaustan 15-23 m/s og skafrenningur eða snjókoma með köflum. Slæmt skyggni og líkur á versnandi færð. „Erfið akstursskilyrði og blint í stórhríð á Vestfjörðum á morgun, þá sérstaklega…Lesa meira

true

Mikil aflaaukning á milli ára hjá Grundarfjarðarhöfn – myndasyrpa

Landaður afli hefur aukist töluvert í Grundarfirði á milli ára. Netabátar hafa gert út frá Grundarfirði á vertíðinni auk heimabátanna sem gera út allt árið. Þá hefur töluverður fjöldi skipa komið inn til Grundarfjarðar til löndunar frá áramótum. Landaður afli í janúar 2025 var tæp 1.900 tonn miðað við rétt rúmlega 2.900 tonn í ár.…Lesa meira

true

Amma Andrea færði Mæðrastyrksnefnd páskaegg

Mæðrastyrksnefnd Akraness heldur árlega páskaúthlutun sína næstkomandi þriðjudag frá húsnæði RKÍ við Kirkjubraut 12 (bakdyramegin). Mæðrastyrksnefnd glímir við húsnæðisskort og því er ekki úthlutað mat að þessu sinni. Úthlutað verður úttektarkortum í verslunum Bónuss og Krónunnar. Sem auka glaðning fá skjólstæðingar páskaegg, en þau eru gjöf frá Ömmu Andreu sem leggur þau til með afrakstri…Lesa meira

true

Rafræn meðmælasöfnun

Kjörstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is. Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar. Einnig er heimilt að safna meðmælendum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður…Lesa meira

true

Stefnt er að sumaropnun Fjöliðjunnar

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur staðfest tillögu velferðar- og mannréttindaráðs um beiðni Fjöliðjunnar að hafa hana opna yfir sumarið til að koma móts við þarfir sinna fötluðu starfsmanna. Fjöliðjan fagnar þessu framfaraskrefi, skjólstæðingum sínum til handa, sem og aukinni þjónustu við bæjarbúa. Bæjarstjórn hefur staðfest 4,5 milljóna króna viðbótarkostnað vegna ráðninganna. Fjöliðjan fagnaði 40 ára afmæli sínu…Lesa meira