Fréttir

true

Trausti sjálfkjörinn formaður BÍ

Á miðnætti lauk framboðsfresti í embætti formanns Bændasamtaka Íslands. Samkvæmt samþykktum Bændasamtakanna er formaður kosinn á tveggja ára fresti með rafrænni kosningu meðal allra félagsmanna. Sé einungis einn frambjóðandi til formanns þegar frestur til framboðs rennur út telst viðkomandi sjálfkjörinn. Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi í Austurhlíð var einn í framboði að þessu sinni og er því…Lesa meira

true

Nemendur í Finnlandsferð sem hluta af Nordplusverkefni

Vikuna 16. – 20. febrúar sl. hélt tíu nemenda hópur úr 9. og 10. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar til bæjarins Sievi í Norður- Finnlandi, ásamt umsjónarkennurum af unglingastigi, þeim Vigdísi Sigvaldadóttur og Þóru Geirlaugu Bjartmarsdóttur. Skólinn er í Nordplus samstarfi við Jussinpekkankoulu þar, ásamt Hunderupskolen í Odense, en þangað hélt hópur í heimsókn síðastliðið vor. Verkefnið…Lesa meira

true

Gosi á fjalirnar í Menntaskóla Borgarfjarðar

Leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar er nú á lokametrunum í uppfærslu á söngleiknum Gosa í leikgerð Karls Ágústs Úlfssonar. Sýnt verður í Hjálmakletti. Blaðamaður Skessuhorns leit við fyrir skiptingaæfingu hjá leikhópnum síðdegis í gær. Greinilegt var að spennu og tilhlökkunar gætir í hópnum enda einungis tíu dagar í frumsýningu. Æfingar hófust í janúar en leiklistarnámskeið var haldið…Lesa meira

true

Seinka til kvölds keppni í Vesturlandsdeildinni

Klukkan 18 í kvöld stóð til að halda keppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í Faxaborg, en keppt verður í Tölt T2. „Í ljósi veðurspár dagsins hefur sú ákvörðun verið tekin að seinka byrjun T2 í Vesturlandsdeildinni til klukkan 20 í kvöld.  Vonandi gengur allt vel og þessi seinkun komi ekki að sök,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Grundarfjörður tapaði naumlega fyrir toppliði KA U20

Blaklið Grundarfjarðar heimsótti topplið KA U20 á laugardasginn. Lið KA U20 er skipað yngri leikmönnum KA, eins og nafnið gefur til kynna, en þessar ungu stelpur hafa farið með himinskautum í 1. deildinni og hafa góða forystu á toppi deildarinnar. Lið Grundarfjarðar situr í fjórða sæti en þær höfðu tapað síðustu tveimur leikjum áður en…Lesa meira

true

Varað er við sviptivindum síðdegis

„Við Hafnarfjall, í Hvalfirði og á norðanverðu Snæfellsnesi verða varasamir sviptivindar frá klukkan 14 til 18 í dag,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. „Hálka verður um leið og hitinn nær upp fyrir frostmark. Það á reyndar við um allt land þegar hlýnar síðar í dag.“Lesa meira

true

Loðnuvertíðin hafin á Akranesi

Ungur bóndi úr Saurbænum segir tekjur sínar á loðnuvertíð fara langt með að dekka áburðarkaup á 600 kinda fjárbúi. Hann verður ásamt hópi fólks að skera og hreinsa loðnu næstu tíu daga Venus NS-150, uppsjávarveiðiskip Brims, kom til hafnar með 1500 tonn af loðnu til vinnslu á Akranesi í gærmorgun. Þetta er fyrsta loðnan sem…Lesa meira

true

Lögbýlum fjölgaði um níu á síðasta ári

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út Lögbýlaskrá fyrir árið 2025. Samkvæmt henni eru 6.808 lögbýli á Íslandi en á síðasta ári voru gerðar breytingar, þar sem níu ný lögbýli voru skráð en ekkert lögbýli var afskráð. Samkvæmt jarðalögum teljast þau lögbýli sem hafa fengið útgefið sérstakt leyfi frá ráðherra um lögbýlisrétt og skal því leyfi…Lesa meira

true

Gul viðvörun um tíma á morgun

Á morgun, þriðjudag frá klukkan 9-13, er gul viðvörun fyrir spásvæðið Faxaflóa. Þá verður suðaustan 13-20 m/s og snjókoma eða skafrenningur og lítið skyggni á köflum, einkum á fjallvegum, en einnig t.d. á Kjalarnesi og Snæfellsnesi. Vindhviður kringum 30 m/s við fjöll, sem er varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Samgöngur geta raskast.…Lesa meira

true

Mottuleiðir og fleira frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar

Marsmánuður fyrir afa, pabba, syni, bræður, vini og okkur öll Fram undan er marsmánuður, mánuður sem Krabbameinsfélag Íslands, ásamt aðildarfélögum um land allt, hafa nýtt til að minna karlmennina okkar á að fara í skimun. Það gera félögin með ýmsum hætti, allt eftir því sem geta og vilji leyfir hverju sinni. Það er vel og…Lesa meira