Gul viðvörun um tíma á morgun

Á morgun, þriðjudag frá klukkan 9-13, er gul viðvörun fyrir spásvæðið Faxaflóa. Þá verður suðaustan 13-20 m/s og snjókoma eða skafrenningur og lítið skyggni á köflum, einkum á fjallvegum, en einnig t.d. á Kjalarnesi og Snæfellsnesi. Vindhviður kringum 30 m/s við fjöll, sem er varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Samgöngur geta raskast. Fleiri aðvaranir eru vegna veðurs í öðrum landshlutum og bent á vedur.is í því sambandi.