Mottuleiðir og fleira frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar

Marsmánuður fyrir afa, pabba, syni, bræður, vini og okkur öll

Fram undan er marsmánuður, mánuður sem Krabbameinsfélag Íslands, ásamt aðildarfélögum um land allt, hafa nýtt til að minna karlmennina okkar á að fara í skimun. Það gera félögin með ýmsum hætti, allt eftir því sem geta og vilji leyfir hverju sinni. Það er vel og mikilvægi skimunar nauðsynleg eins og allir vita.

Krabbameinsfélag Borgarfjarðar hefur nýtt sér marsmánuð í þessum tilgangi sem og að vekja athygli á starfsemi félagsins. Það hefur verið með ákveðna viðburði tengda honum rétt eins og að hafa bleika viðburði í október til að minna konur á nauðsyn þess að fara í skimun.

Á síðastliðnu ári stóð félagið fyrir því að setja upp þrjár merktar ,,Mottuleiðir“ í Borgarbyggð með það að markmiði að einstaklingar velji að gera reglulega hreyfingu að venju. Mottuleiðirnar voru í Reykholti (frá kirkjuplani að Skriflu), á Hvanneyri (milli Skemmunnar og Landbúnaðarháskólans) og á Seleyrinni við Borgarfjarðarbrúna. Hver leið á milli merkinga var 250 metrar og merktar með bláum hring og svörtu skeggi (mottu). Einstaklingar geta nýtt sér þessar gönguleiðir til að heita á félagið okkar, fyrir hverja mottuleið eða þá metra sem gengnir eru, allt eftir því hvað fólk vill eða getur. Stjórn félagsins er kunnugt um að fólk hafi nýtt sér að ganga þessar leiðir á öllum stöðunum og sett sér ákveðin markmið um fjölda gönguferða, áheit og fleira. Félagið ætlar að endurtaka þennan viðburð í mars, með einni breytingu þó, að gönguleiðin sem var við Seleyrina í Borgarnesi verður færð í Skallagrímsgarðinn.

Aðalfundur félagsins

Aðalfundur félagsins hefur undanfarið verið í marsmánuði og þá hefur verið boðið upp á bláa göngu fyrir fundinn, þar sem einstaklingar rölta saman létta leið með bláu ívafi og hugsa til þeirra sem hafa fengið eða eru með krabbamein. Að göngu lokinni býður félagið upp á fræðsluerindi í tengslum við aðalfundinn.

Miðvikudaginn 18. mars næstkomandi verður aðalfundur félagsins haldinn í Snorrastofu í Reykholti. Eins og áður verður blá ganga fyrir fundinn, þar sem fólk er hvatt til að íklæðast einhverju bláu og yfirskrift fræðsluerindisins sem verður þar er; „Líðan og bjargráð karla með krabbamein“. Nánari auglýsing um aðalfundinn verður auglýst þegar nær dregur í Skessuhorni og víðar.

Það er von Krabbameinsfélags Borgarfjarðar að sem flestir gangi í félagið og taki þátt í þeim viðburðum sem það stendur fyrir. Því fleiri félagsmenn því öflugra félag. Félagið styrkir einstaklinga sem eru félagsmenn og greinast með krabbamein samkvæmt reglum félagsins. Á facebooksíðu félagsins er upplýsingabæklingur þar sem liggja fyrir ýmsar þarfar upplýsingar fyrir þá sem þurfa á upplýsingum að halda.

fréttatilkynning