Fréttir

true

Vegagerðin bendir á veðuraðstæður

Í tilkynningu frá Vegagerðinni er varað við að færð geti versnað síðar í dag. „Það snjóar víða á suðvestanverðu landinu eftir hádegi. Þar sem snjóar mest verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu. Það er enn nokkur óvissa hvar snjóar mest, en spáð er hríðarveðri á Reykjanesbraut og á hringveginum norður af Hvalfirði á milli…Lesa meira

true

Fjárfestingar í sauðfjárrækt styrktar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt. Fram kemur í frétt á vef atvinnuvegaráðuneytisins að skila skal inn umsóknum vegna framkvæmda á árunum 2025-2026 rafrænt á Afurð, eigi síðar en 15. mars. Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum og…Lesa meira

true

Áhyggjur af ófrágengnum samningi við UMSB

Fræðslunefnd Borgarbyggðar bókaði um samning við Ungmennasamband Borgarfjarðar á fundi sínum 19. febrúar sl. Þar kom fram að unnið hefði verið að því frá síðasta hausti að ná samningi við UMSB á grunni íþróttastefnu Borgarbyggðar sem samþykkt var í sveitarstjórn. Fræðslunefnd hefur áhyggjur af því að ekki hafi tekist að klára þann samning sem nefndinni…Lesa meira

true

Suðvestan átt með snjókomu eða éljum fram að helgi

Fram að næstu helgi gera veðurfræðingar ráð fyrir suðvestan átt, víða nokkuð hvassri, samhliða snjókomu eða éljagangi. Lægðardrög fara næstu þrjá daga austur yfir landið. Eftir hádegi í dag verður suðvestan og sunnan 8-15 m/s og snjókoma eða él, en úrkomulaust að kalla á austanverðu landinu. Frost 1 til 7 stig. Skúrir eða él sunnanlands…Lesa meira

true

Dýrmætt að finna alla þessa samstöðu – segir forstjóri Norðuráls

Nokkur hundruð sóttu um störf í álverinu á Grundartanga þegar auglýst var eftir fólki. Vonir standa til að álverið verði aftur rekið á fullum afköstum í lok júlí eftir erfitt óvissutímabil „Þetta er vissulega mjög ánægjulegt og mikill léttir fyrir alla,“ segir Gunnar Guðlaugsson forstjóri Norðuráls í viðtali við Skessuhorn. Álver Norðuráls á Grundartanga gæti…Lesa meira

true

Heiðbjört leggur land undir fót

Karlarkórinn Heiðbjört starfar á sunnanverðu Snæfellsnesi og á uppruna sinn í Breiðuvík. Fyrir höndum er söngferðalag til Slóvakíu og Tékklands í byrjun mars og er stíft æft vegna þess sem framundan er. Ferðin er til komin vegna tengsla kórstjórnandans Hólmfríðar Friðjónsdóttur við tónlistarfólk í Bratislava í Slóvakíu og einnig vegna persónulegra tengsla kórmeðlima við fólk…Lesa meira

true

Lokað vegna vatnsskorts

Fram kemur á heimasíðu Íþróttamiðstöðvarinnar Heiðarborgar í Hvalfjarðarsveit að sundlaug og sturtur þar verða lokuð alla þessa viku vegna vatnsskorts. Íþróttasalur og þreksalur eru samt opinn samkvæmt opnunartíma. Ákvörðunin verður endurskoðuð mánudaginn 2. mars nk. Áður hafði verið tilkynnt að sundlaugin væri lokuð frá 18. febrúar vegna vatnsskorts á svæðinu og var sú ákvörðun endurskoðuð…Lesa meira

true

Samkomuhúsið fær hlutverk

Á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Stykkishólms 19. febrúar sl. voru lögð fram drög að samningi sveitarfélagsins og Aftanskins, félags eldri borgara í Stykkishólmi. Samningurinn snýst um afnot af Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6, þar sem Eldfjallasafn Haraldar Sigurðssonar jarðfræðings var síðast til húsa. Í fundargerð bæjarráðsins kemur fram að samningurinn við Aftanskin sé í samræmi við áherslur…Lesa meira

true

Óvenju mikið úrval íbúða til sölu í Borgarnesi

Segja má að óvenju margar íbúðir séu til sölu í Borgarnesi um þessar mundir. Er aðal ástæðan sú að þrjú nýbyggð fjölbýlishús eru komin á söluskrá. Eitt húsið er við Borgarbraut 55 og er það með 16 íbúðum. Við Borgarbraut 63 er hús með 12 íbúðum og við Kveldúlfsgötu 30 eru 15 íbúðir. Samtals gera…Lesa meira

true

Strákarnir efstir í aðalfundartvímenningi

Þriggja kvölda keppni í tvímenningi hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar, sem kennd var við aðalfund félagsins, lauk í gærkveldi. Þeir Logi Sigurðsson og Heiðar Árni Baldursson sigldu sigri í örugga höfn, fengu að meðaltali 58,07% skor. Í öðru sæti urðu Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttir með 57,4% og þriðju urðu Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson með…Lesa meira