Vegagerðin bendir á veðuraðstæður

Í tilkynningu frá Vegagerðinni er varað við að færð geti versnað síðar í dag. „Það snjóar víða á suðvestanverðu landinu eftir hádegi. Þar sem snjóar mest verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu. Það er enn nokkur óvissa hvar snjóar mest, en spáð er hríðarveðri á Reykjanesbraut og á hringveginum norður af Hvalfirði á milli klukkan 14 og 19. Snjóar einnig og krefjandi akstursskilyrði á Hellisheiði og í Þrengslum á sama tíma.“