
Suðvestan átt með snjókomu eða éljum fram að helgi
Fram að næstu helgi gera veðurfræðingar ráð fyrir suðvestan átt, víða nokkuð hvassri, samhliða snjókomu eða éljagangi. Lægðardrög fara næstu þrjá daga austur yfir landið. Eftir hádegi í dag verður suðvestan og sunnan 8-15 m/s og snjókoma eða él, en úrkomulaust að kalla á austanverðu landinu. Frost 1 til 7 stig. Skúrir eða él sunnanlands í kvöld og hlýnar heldur.
Í fyrramálið, fimmtudag, verður svo suðaustan 8-15 m/sek og rigning eða slydda, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 0 til 6 stig. Gengur í norðvestan 10-18 m/sek með snjókomu á vestanverðu landinu síðdegis á morgun og frystir. Loks á föstudag verður vestan 8-15 m/sek og él eða snjókoma, en léttir til á austanverðu landinu eftir hádegi. Frost 2 til 9 stig. Um helgina verður að mestu þurrt hér á Vesturlandi.
Meðfylgjandi mynd var tekin í Fagradal í gærkvöldi. Þar setti veður strik sitt í ferðaáætlanir nokkurs fjölda þegar hvessti og skyggni versnaði. Nokkurt kóf var á þessum slóðum eins og sést á meðfylgjandi mynd frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Björgunarsveitir komu ferðalöngum til aðstoðar.