Fréttir

true

Valdís Þóra Íslandsmeistari í höggleik 2017

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi stóð uppi sem sigurvegari á Íslandsmótinu í höggleik sem fór fram á Hvaleyrarvelli og lauk í dag. Valdís Þóra lék hringina fjóra á 10 höggum yfir pari og sigraði að lokum með tveggja högga mun eftir æsispennandi einvígi við Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Valdís Þóra hóf lokadaginn…Lesa meira

true

Hvasst á Snæfellsnesi

Veðrið hefur ekki leikið við íbúa Snæfellsness síðustu dagana og um helgina var engu líkara en fyrstu haustlægðirnar væru mættar. Rafmagnstruflanir urðu á bæjum innan við Ólafsvík vegna þess að staur brotnaði. Einnig fuku fiskikör til á bryggjunni í Ólafsvík. Ekki urðu þó neinar skemmdir eða slys eftir því sem vitað er. Hvassast var í…Lesa meira

true

Óska eftir tilboðum í niðurrif Sementesverksmiðjunnar

Óskað er eftir tilboðum í niðurrif bygginga og búnaðar Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Mannvirkin sem stendur til að rífa eru 16 talsins og skv. útboði er verktíminn til 20. ágúst 2018. Kynningarfundur verður á verkstað fimmtudaginn 27. júlí næstkomandi kl. 9:30. Tilboðin verða opnuð í ráðhúsi Akranskaupstaðar 30. ágúst næstkomandi.Lesa meira

true

Úttekt lokið á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi

Verkfræðistofan EFLA hefur lokið úttekt á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi. Markmið skoðunar var að meta umfang rakavandamála og mögulega greina aðra þætti sem haft geta áhrif á loftgæði og innivist í skólanum. Einnig var ástand ytra hjúps hússins metið og tillögur gerðar að úrbótum. „Húsnæðið var skoðað ítarlega að innanverðu, farið var yfir rýmin með…Lesa meira

true

ÍA tókst ekki að stela sigrinum

Einn leikur fór fram í 1. deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi þegar ÍA og ÍR mættust á Akranesvelli. Leikurinn var nokkuð fjörlegur í upphafi og eftir 15 mínútna leik hefðu bæði lið getað verið komin yfir. ÍR fékk dauðafæri á 11. mínútu þegar Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir fékk sendingu inn fyrir vörn Skagakvenna. Hún lyfti…Lesa meira

true

Tólf kvöldgöngur fyrirhugaðar um Dali í sumar

Valdís Einarsdóttir safnvörður Byggðasafns Dalamanna hefur staðið fyrir kvöldgöngum víða í Dölum í sumar. Dagskráin var sett af stað í hreyfiviku UMFÍ og var þá farið um gönguleið í Svínadal. Áætlað er að kvöldgöngur Byggðasafnsins verði tíu til tólf talsins og að dagskráin standi fram í ágúst. Nú þegar hefur verið gengið um Svínadal, upp…Lesa meira

true

Knattspyrnuveisla á Hellissandi

Knattspyrnuveisla var á Hellissandi sl. sunnudag þegar tveir leikir fóru fram á Hellissandsvelli. Fyrst áttust við Snæfellsnes og sameiginlegt lið ÍBV/KFR í 4. flokki karla A liða. Lauk þeim leik með 2-2 jafntefli. Næst léku Snæfellsnes og ÍBV/KFR í 4. flokki karla B liða og þar smellti Björg Ágústsdóttir af og náði þessari skemmtilegu mynd…Lesa meira

true

Fréttir úr nokkrum laxveiðiám á Vesturlandi

„Við erum komnir í 455 laxa en í fyrra veiddust 650 laxar allt sumarið. Þetta gengur flott og fiskurinn er búinn að dreifa sér um alla ána,“ sagði Jón Þór Júlíusson við Grímsá í Borgarfirði í samtali við Skessuhorn í byrjun vikunnar. Þar gengur veiðin vel líkt og í Haffjarðará, Langá og ekki síst í…Lesa meira

true

Tónlistarhátíðin Reykholtshátíð um aðra helgi

Reykholtshátíð verður haldin í tuttugasta og annað sinn helgina 28. til 30 júlí næstkomandi. „Dagskráin er sérlega glæsileg, fernir tónleikar sem bjóða upp á fjölbreytta flóru tónverka, flutt af mörgum af þekktustu tónlistarmönnum okkar og sérlegum gestum, strengjakvartettinum Meta4. Efnisskráin spannar aldir – allt frá Bach (1685-1750) til hins finnska Juha Koskinen (1972).“ Ítarlega efnisskrá…Lesa meira

true

Finnst varla hafa heyjað fyrr en búið er að fara í baggana

Þeir eru ekki margir bændurnir sem enn heyja í bagga. Á bænum Harrastöðum í Miðdölum er gamla verklagið enn í gildi samhliða nútíma heyskap. Þorbjörn Jóelsson bóndi á Harrastöðum heyjaði um þrjú þúsund bagga í síðastliðinni viku, sem er þó eitthvað minna en undanfarin ár. Unga fólkið tók virkan þátt í heyskapnum eins og raunar…Lesa meira