Fréttir

true

Borgarbyggð hafnaði kaupum á Álftanesi á Mýrum

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur hafnað kaupum á jörðinni Álftanesi á Mýrum sem sveitarfélaginu var boðin til kaups á 400 milljónir króna. Sveitarfélaginu barst umrætt tilboð á dögunum frá eigendum jarðarinnar. Jörðin er talin vera um 2.500 hektarar að stærð með fjölbreyttu landslagi; mýrum, graslendi, klettaholtum, fjörum, fitjum, stöðuvötnum og lækjum eins og eigendur jarðarinnar lýsa henni.…Lesa meira

true

Byggðarráð Borgarbyggðar rýnir í sérfræðiþjónustu Verkís

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að farið verði yfir þá sérfræðiþjónustu sem sveitarfélaginu var veitt vegna undirbúnings niðurrifs gamla sláturhússins í Brákarey. Líkt og komið hefur ítarlega fram í fréttum Skessuhorns á undanförnum mánuðum hefur kostnaður við fyrsta áfanga niðurrifsins farið langt fram úr þeim áætlunum sem lagðar voru til grundvallar útboðs vegna verksins. Fyrsta áfanga…Lesa meira

true

Rúlluplast pressað í stað söfnunar í gáma

Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps hefur ákveðið að hætt verði að nota sorpgáma til söfnunar á rúlluplasti í sveitarfélaginu en útvegar í stað þess þeim sem á þurfa að halda plastpressu. Er þetta gert til þess að minnka eða koma í veg fyrir mengun af völdum plastsins. Sveitarfélagið hefur um árabil útvegað sorpgáma til söfnunar á…Lesa meira

true

Hækka dagpeninga á ferðalögum innanlands

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins frá og með deginum í dag. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og…Lesa meira

true

Ætla að bæta lýsingu í göngunum

Vegagerðin hefur auglýst útboð vegna endurnýjunar lýsingar í Hvalfjarðargöngum. Í verkinu felst niðurrif núverandi veglýsingar, neyðarlýsingarlampa, leiðarljósa á vegg ásamt lampa yfir neyðarsímaskáp og strengja, ásamt uppsetningu nýrra lampa, rafstrengja og stýribúnaðar fyrir veglýsingar og uppsetningar strengstiga í útskot og endurnýjun dreifiskápa í tæknirýmum. Verkinu skal að fullu lokið 20. maí 2026. Gert er ráð…Lesa meira

true

Kjördæmavika er nú í gangi

Svokölluð kjördæmavika stendur nú yfir á Alþingi, dagana 29. september – 2. október. Þar af leiðandi eru engir þingfundir þessa vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn gjarnan til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og aðra.Lesa meira

true

Haust á Skarðsströnd

Það var bjart yfir smölum og sauðfé að aflokinni smalamennsku á Skarðsströnd í Dölum hjá Höllu og Guðmundi bændum á Ytri Fagradal. Hér eru ærnar komnar heim undir bæ, haustlitir komnir á kjarrið en Hólkotsmúli og Hafratindur, fjall Dalanna, teygir sig í baksýn. Myndina tók Barbara Ómarsdóttir.Lesa meira

true

Subway færir sig hugsanlega um set á Akranesi

Það vakti nokkra athygli á dögunum þegar húsnæði það sem Subway hefur haft til umráða við hlið Krónunnar að Dalbraut 1 á Akranesi var auglýst til leigu. Aðdáendur veitingastaðarins höfðu af því áhyggjur að nú væri komið að endalokum hans á Akranesi. Skúli Gunnar Sigfússon, sem á og rekur Subway á Íslandi, segir í samtali…Lesa meira

true

Undirbúningsstjórn að stofnun nýs sveitarfélags skipuð

Sveitarstjórnir Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hafa hvor um sig skipað þrjá fulltrúa í undirbúningsstjórn að stofnun hins nýja sveitarfélags sem til verður við sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga sem samþykkt var á dögunum. Undirbúningsstjórn þessi er skipuð samkvæmt sveitarstjórnarlögum og er það hennar hlutverk að semja samþykkt um stjórn og fundarsköp hinnar nýju sveitarstjórnar sem gilda fyrir…Lesa meira

true

Akur byggir nýtt starfsmannahús í Fíflholtum

Sorpurðun Vesturlands hf. hefur samið við Trésmiðjuna Akur á Akranesi um smíði á starfsmanna- og þjónustuhúsi sem verður sett upp í Fíflholtum á Mýrum. Húsið mun verða sett niður á sama stað og núverandi þjónustuhús stendur en það var sett niður til bráðabirgða árið 1999. Áætlað er að nýja húsið verði komið í Fíflholt í…Lesa meira