
Hrefna B Jónsdóttir framkvæmdastjóri handsalar hér samninginn við Halldór Stefánsson framkvæmdastjóra Trésmiðjunnar Akurs. Ljósm. ssv
Akur byggir nýtt starfsmannahús í Fíflholtum
Sorpurðun Vesturlands hf. hefur samið við Trésmiðjuna Akur á Akranesi um smíði á starfsmanna- og þjónustuhúsi sem verður sett upp í Fíflholtum á Mýrum. Húsið mun verða sett niður á sama stað og núverandi þjónustuhús stendur en það var sett niður til bráðabirgða árið 1999. Áætlað er að nýja húsið verði komið í Fíflholt í lok maí á næsta ári.