Fréttir

true

Leikfélagið Lauga færir Ævintýrabókina á svið

Leikfélagið Lauga er áhugamanna leikfélag sem er starfsrækt í Snæfellsbæ. Nú á dögunum hófust æfingar hjá félaginu þar sem verið er að setja upp leikverk sem ber nafnið Ævintýrabókin. Það er eftir Pétur Eggerz og er í leikstjórn Alexander Stutz. Ævintýrabókin fjallar um úlfinn í Rauðhettu þar sem hann strýkur úr ævintýrinu og fer yfir…Lesa meira

true

Grundfirðingar leggja land undir fót

Í ár eru 20 ár síðan Grundarfjörður og Paimpol í Frakklandi tóku upp formlegt vinabæjarsamband. Í gegnum tíðina hafa bæjarbúar og bæjarstjórnir haft gagnkvæmar heimsóknir. Í tilefni af afmælinu ætlar Grundapol félagið í Paimpol að halda hátíðardagskrá dagana 17.-21. október. Af því tilefni er hópur frá Grundarfirði sem telur 38 manns á leið til Frakklands,…Lesa meira

true

Kennarafélag FVA sendir frá sér ályktun vegna kjaradeilu framhaldsskólakennara

Félag framhaldsskólakennara hefur með reglulegum hætti sent félagsfólki sínu og skólameisturum tölfræði um launaþróun í framhaldsskólum. Samkvæmt nýjustu tölum sem miðast við fyrri hluta árs 2024 þá er ljóst nýr stofnanasamningur er að skila ætluðum árangri í þróun dagvinnulauna og er Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi nú meðal sex efstu skólanna, af þeim 27 skólum sem…Lesa meira

true

Þrjátíu bílar fluttu steypu í brúargólfið í Kollafirði

Síðastliðinn laugardag var brúardekkið steypt við Eyri í Kollafirði í Reykhólasveit. Brúargerðin er á vegum Vestfirskra verktaka og vinnur fyrirtækið að tveimur brúm sitt hvorum megin við Klettshálsinn, hin er yfir í Skálmardal. Eins og jafnan þegar brýr eru steyptar er kappkostað að hafa samfellu í verkinu þannig að engin steypuskil myndist. Brúargólfið er 80…Lesa meira

true

Lionsklúbburinn gefur skógræktinni bekki

Lionsklúbburinn Harpa gaf Skógrækt Stykkishólms nýverið átta bekki til að setja við göngustíga í skógræktinni Grensás. Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu bekkjanna. Í efri röð eru Harpa Gunnarsdóttir, Erna Guðmundsdóttir, Nadine Walter og Þórný Alda Baldursdóttir. Í fremri röð: Árni Ásgeirsson og Magnus Ingi Bæringsson Frá Skógræktarfélagi Stykkishólms og Berglind Lilja Þorbergsdóttir frá Hörpunum.Lesa meira

true

Hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu, hélt sína árlegu viðurkenningarhátíð síðastliðinn fimmtudag. Viðurkenningar voru veittar 93 fyrirtækjum, 15 sveitarfélögum og 22 opinberum stofnunum, úr hópi þeirra 247 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu voru sveitarfélögin Akraneskaupstaður og Borgarbyggð en auk þess Norðurál og Elkem Ísland á Grundartanga. Markmið Jafnvægisvogar er að…Lesa meira

true

Þórdís íhugar að skipta um kjördæmi

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, íhugar nú að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Þetta staðfestir hún í samtali við Morgunblaðið í morgun. „Í þeirri stöðu sem nú er komin upp finnst mér mér bera skylda til þess að líta til hvar ég get unnið Sjálfstæðisflokknum og…Lesa meira

true

Nemendur GB tóku þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

Nemendur í Grunnskólanum í Borgarnesi tóku á dögunum þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ eða Mjólkurhlaupinu eins og krakkarnir kjósa að kalla það. Hlaupið var um íþróttavöllinn, yfir í Englendingavík, eftir fjörunni framhjá Landnámssetrinu og upp á Brákarbraut. Þar var hlaupið upp eftir Borgarbrautinni í átt að Skallagrímsgarði þar sem hlaupin var smá flétta áður en endað…Lesa meira

true

Domus Nova opnar fasteignasölu í Borgarnesi

Domus Nova opnaði skrifstofu í Borgarnesi síðastliðinn föstudag en opið hús var fyrir gesti og gangandi síðdegis. Skrifstofan er að Borgarbraut 61. Domus Nova er ein af stærri fasteignasölum landsins, með höfuðstöðvar sínar að Hlíðarsmára 4 í Kópavogi en er með útibú á Selfossi, Akranesi og nú í Borgarnesi. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af Ragnheiði…Lesa meira

true

Leiksvæðum mun ekki fækka en þau verða færð

Nú eru framundan breytingar sem fela í sér að leiksvæðum fyrir börn fækkar í Borgarnesi. Annars vegar vegna framkvæmda sem hafnar eru við byggingu fjölbýlishúss við Kveldúlfsgötu og hins vegar eru framundan breytingar vegna nýs knatthúss við Skallagrímsvöll. En hefur sveitarstjórn rætt hvort leiktæki á þessum lóðum verði flutt og þeim komið fyrir annars staðar?…Lesa meira