
Hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu, hélt sína árlegu viðurkenningarhátíð síðastliðinn fimmtudag. Viðurkenningar voru veittar 93 fyrirtækjum, 15 sveitarfélögum og 22 opinberum stofnunum, úr hópi þeirra 247 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu voru sveitarfélögin Akraneskaupstaður og Borgarbyggð en auk þess Norðurál og Elkem Ísland á Grundartanga.