
Domus Nova er til húsa við Borgarbraut 61.
Domus Nova opnar fasteignasölu í Borgarnesi
Domus Nova opnaði skrifstofu í Borgarnesi síðastliðinn föstudag en opið hús var fyrir gesti og gangandi síðdegis. Skrifstofan er að Borgarbraut 61. Domus Nova er ein af stærri fasteignasölum landsins, með höfuðstöðvar sínar að Hlíðarsmára 4 í Kópavogi en er með útibú á Selfossi, Akranesi og nú í Borgarnesi.