
Yfir þrjú hundruð krakkar tóku þátt í hlaupinu. Ljósm. borgarbyggd.is
Nemendur GB tóku þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ
Nemendur í Grunnskólanum í Borgarnesi tóku á dögunum þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ eða Mjólkurhlaupinu eins og krakkarnir kjósa að kalla það. Hlaupið var um íþróttavöllinn, yfir í Englendingavík, eftir fjörunni framhjá Landnámssetrinu og upp á Brákarbraut. Þar var hlaupið upp eftir Borgarbrautinni í átt að Skallagrímsgarði þar sem hlaupin var smá flétta áður en endað var í marki við íþróttahúsið. Það voru 311 krakkar sem hlupu alls 812,5 km sem er 22,5 km meira en í fyrra.