Fréttir

true

Nýr sjálfsafgreiðsluskúr í Ásgarði

Við bæinn Ásgarð í Dölum er kominn nýr sjálfsafgreiðsluskúr. Hægt er að greiða fyrir viðskipti með ýmsum leiðum en auðveldast er að greiða með reiðufé í heiðarleikaboxið sem staðsett er í skúrnum. Þegar Skessuhorn leit við var ekki mikið eftir í ísskápnum og því greinilegt að ferskt grænmeti er að seljast vel.Lesa meira

true

Eyjar í norðri fyrstu tónleikar Kalmans á starfsárinu

Kalman listafélag á Akranesi býður til tónlistarveislu í Vinaminni næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20 í samvinnu við TonSagaNor. Þar verður sannkölluð tónlistarupplifun í tali, tónum og myndum undir yfirskriftinni ,,Eyjar í norðri“ með þeim Kolbeini Jóni Ketilssyni tenór, Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara, Guðna Franzsyni klarinettuleikara og Bergsveini Birgissyni rithöfundi. Aðgangseyrir er kr. 4.000 en kr. 3.500…Lesa meira

true

Heitavatnslaust við þrjár götur á morgun

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vegna viðgerðar verður heitavatnslaust við þrjár götur á Akranesi frá klukkan 9 til 16 á morgun, þriðjudag. Göturnar eru Garðabraut, Höfðabraut og Jaðarsbraut. Sjá nánar á heimasíðu Veitna www.veitur.is Veitur biðja velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. „Í kuldatíð mælum við með að hafa glugga lokaða…Lesa meira

true

Tekjumörk hlutdeildarlána hækkuð

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um hækkun á tekjumörkum vegna hlutdeildarlána. Hlutdeildarlán eru lán sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum með það að markmiði að brúa eiginfjárkröfu við íbúðarkaup fyrir þá…Lesa meira

true

Naumt tap Skagamanna gegn Sindra

Sindri og ÍA áttust við í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Ice Lagoon höllinni á Höfn. Það var jafnt á flestum tölum í fyrsta leikhluta en Skagamenn höfðu frumkvæðið og náðu mest fimm stiga forskoti miðja vegu, 10:15. Þegar fyrsta leikhluta lauk voru gestirnir með þriggja stiga…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði í Laugardalshöllinni

Skallagrímur úr Borgarnesi heimsótti Ármann í Laugardalshöllina á föstudagskvöldið en um var að ræða fyrstu umferð 1. deildar karla í körfubolta. Liðunum var fyrir tímabilið spáð svipuðu gengi en nokkrar mannabreytingar hafa orðið á þeim báðum. Skallagrímur lék til dæmis ekki með bandarískan leikmann en vonir standa til að nýr bandarískur leikmaður verði kominn í…Lesa meira

true

UMFG tók á móti Vestra í fyrstu deild kvenna

Ungmennafélag Grundarfjarðar spilar í fyrstu deild kvenna í blaki í vetur. Fyrir rúmri viku tapaði félagið fyrsta leik sínum gegn Fylki en UMFG og Vestri mættust síðan á laugardaginn í Íþróttahúsi Grundarfjarðar. Það var því hugur í báðum liðum fyrir leik en gestirnir byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinuna 25-17. Heimastúlkur í UMFG komu ákveðnar…Lesa meira

true

Snæfell byrjaði tímabilið með sterkum sigri

Snæfell í Stykkishólmi gerði góða ferð í Grafarvoginn á föstudaginn þegar liðið heimsótti Fjölni í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Fjölni var fyrir tímabilið spáð einu af efstu sætum deildarinnar á meðan Snæfell var spáð áttunda sæti. Leikurinn var í járnum á fyrstu mínútunum en þegar um fjórar mínútur voru eftir af fyrsta…Lesa meira

true

Eldur þegar málmur rann úr deiglu

Eldur kom upp í kerskála í Norðuráli á Grundartanga um klukkan 02:30 í nótt. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar fór á vettvang. Að sögn lögreglu lak fljótandi málmur úr deiglu og á farartæki með þeim afleiðingum að í því kviknaði. Slökkvilið náði fljótt tökum á eldinum og slökkti í. Ekki urðu slys á fólki.Lesa meira

true

Skagamenn fóru á kostum á móti FH

ÍA og FH mættust í þriðju umferð efri helmings Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Elkem vellinum á Akranesi. Þetta byrjaði með látum því strax á fyrstu mínútu leiksins komust gestirnir yfir með marki frá Kjartani Kára Halldórssyni sem þrumaði boltanum í nærhornið úr aukaspyrnu og fór boltinn í Árna…Lesa meira