Tekjumörk hlutdeildarlána hækkuð

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um hækkun á tekjumörkum vegna hlutdeildarlána. Hlutdeildarlán eru lán sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum með það að markmiði að brúa eiginfjárkröfu við íbúðarkaup fyrir þá sem þess þurfa.

Tekjumörk hlutdeildarlána hækkuð - Skessuhorn