Fréttir

true

Skemmdarverk á hoppubelg

Það var ekki skemmtileg aðkoman á hoppubelgnum við Akraneshöllina í vikunni þegar í ljós kom að búið var að skera göt á hann á nokkrum stöðum og hann því loftlaus að öllu. Þessi ærslabelgur hefur notið mikilla vinsælda meðal barna og unglinga á undanförnum árum og því leiðinlegt þegar ekki er hægt að nota hann…Lesa meira

true

Léku sér í góða veðrinu á Langasandi

Nemendur úr 4. og 6. bekk í Grundaskóla á Akranesi notuðu blíðuna í morgun til að gera sér dagamun og fóru í fjöruferð á Langasand. Þau tóku rölt, fóru út í sjó, byggðu ýmislegt úr sandinum og fóru í boltaleik. Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni og tók nokkrar myndir af þessum hressu krökkum sem voru…Lesa meira

true

Réttir á Vesturlandi í haust

Líkt og undanfarin ár taka starfsmenn Bændablaðsins saman upplýsingar um réttir á landinu í haust. Listinn var birtur í blaði þeirra sem kom út í dag. Réttir á Vesturlandi verða samkvæmt því: DALIR: Brekkurétt í Saurbæ, Dal. Sunnudagana 15. sept. kl. 11.00 og 29. sept. kl. 13.00 Fellsendarétt í Miðdölum, Dal. Sunnudagana 15. sept. kl.…Lesa meira

true

Jóhanna Marín með bestu myndina

Menningar- og markaðsnefnd kynnti í vikunni sigurvegara í Ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2024 þar sem þema keppninnar var Hvalfjarðarsveit. Ljósmyndin sem bar sigur úr býtum var tekin af Jóhönnu Marín Óskarsdóttur og voru henni afhent vegleg verðlaun, frá Sláturfélagi Suðurlands, af formanni og varaformanni nefndarinnar.Lesa meira

true

Gamli þjóðvegurinn orðinn rennisléttur á ný

Nú er lokið malbikun gamla þjóðvegarins inn á Akranes, frá Kalmanstorgi við Esjubraut og að Hausthúsatorgi. Gatan á þessum kafla hefur verið óslétt um alllangan tíma, en er nú orðin rennislétt og fín. Framkvæmdin var á vegum Akraneskaupstaðar en verktakinn var Fagurverk ehf.Lesa meira

true

Fjallað um allt frá sjálfskeiðungi til vatnshrúts í nýrri bók

Bókin Búverk og breyttir tímar eru nýjasta afurðin úr ritsmiðju Bjarna á Hvanneyri Fyrr í þessum mánuði kom út hjá bókaforlaginu Sæmundi ný bók eftir Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri. Nefnist hún Búverk og breyttir tímar. Þar fjallar höfundur um nokkur verk og verkfæri sem alþekkt voru á síðustu öld en hafa nú ýmist horfið úr…Lesa meira

true

Manni bjargað úr sjálfheldu í klettum austan við Raufeldsgjá

Rétt upp úr klukkan 14:00 í gær, miðvikudag, barst Björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ útkall vegna manns sem hafði komið sér í sjálfheldu í gili austan Rauðfeldsgjáar á Snæfellsnesi. Hafði maðurinn klifrað um 30-40 hæðarmetra upp bratt gil og treysti sér ekki aftur niður. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu var verkefnið krefjandi og reyndi á klifurfærni björgunarfólks…Lesa meira

true

Kennir tónlist í fjarkennslu þvert yfir landið

Tónlistarmaðurinn Birgir Þórisson er Borgnesingur að upplagi en hefur búið á Akranesi frá árinu 2011. Fyrir einu og hálfu ári síðan sagði hann upp starfi aðstoðarskólastjóra við Tónlistarskólann á Akranesi eftir tveggja ára starf og tónlistarkennslu í skólanum í um tíu ár. Birgir tók þá ákvörðun á þessum tímapunkti að starfa eingöngu sem tónlistarmaður og…Lesa meira

true

Íbúðum fjölgar ekki allsstaðar í takti við íbúafjölgun

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út skýrslu fyrir ágúst 2024 um umsvif á fasteignamarkaði hér á landi. Fasteignamarkaður var líflegur í nýliðnum ársfjórðungi og hafa kaupsamningar ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi að undanskildum árunum 2007 og 2021. Í júlí kom 301 nýbyggð íbúð inn á markaðinn á landinu öllu. Um helmingur þeirra er á…Lesa meira

true

Hlupu til styrktar Vonar í minningu Péturs Sig

Þessi samstillti hópur frá Akranesi tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fór síðasta laugardag og hljóp undir nafninu Hlaupahópur Péturs Sig. Hópurinn hljóp í minningu Péturs Sigurðssonar sem lést af slysförum fyrr í sumar. Hlaupið var fyrir Von sem er félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi og vinnur fyrst og fremst að því…Lesa meira