
Súrir og svekktir drengir á loftlausum hoppubelg. Ljósm. vaks
Skemmdarverk á hoppubelg
Það var ekki skemmtileg aðkoman á hoppubelgnum við Akraneshöllina í vikunni þegar í ljós kom að búið var að skera göt á hann á nokkrum stöðum og hann því loftlaus að öllu. Þessi ærslabelgur hefur notið mikilla vinsælda meðal barna og unglinga á undanförnum árum og því leiðinlegt þegar ekki er hægt að nota hann vegna svona skemmdarverka. Á vef bæjarins kemur fram að kalla þurfi í viðgerðamann frá Reykjavík og er svona viðgerð óhemju kostnaðarsöm. „Þetta er virkilega slæmt og mikill missir af belgnum því núna eru skólabörn að fara í sína útiveru og svæðið sömuleiðis vel nýtt af krökkum í góðviðrinu eftir skóla og um helgar.“