Börnin að leik á Langasandi. Ljósm. vaks

Léku sér í góða veðrinu á Langasandi

Nemendur úr 4. og 6. bekk í Grundaskóla á Akranesi notuðu blíðuna í morgun til að gera sér dagamun og fóru í fjöruferð á Langasand. Þau tóku rölt, fóru út í sjó, byggðu ýmislegt úr sandinum og fóru í boltaleik. Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni og tók nokkrar myndir af þessum hressu krökkum sem voru hin ánægðustu að fá að vera úti ásamt kennurum sínum. Enda er ekki víst miðað við hvernig veðráttan hefur verið í sumar hvort að sólardagarnir verði fleiri næstu daga.

Léku sér í góða veðrinu á Langasandi - Skessuhorn