Rauði hringurinn sýnir þann stað sem maðurinn var á. Ljósmyndir: Landsbjörg

Manni bjargað úr sjálfheldu í klettum austan við Raufeldsgjá

Rétt upp úr klukkan 14:00 í gær, miðvikudag, barst Björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ útkall vegna manns sem hafði komið sér í sjálfheldu í gili austan Rauðfeldsgjáar á Snæfellsnesi. Hafði maðurinn klifrað um 30-40 hæðarmetra upp bratt gil og treysti sér ekki aftur niður. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu var verkefnið krefjandi og reyndi á klifurfærni björgunarfólks á bröttustu köflunum en auk þess var mikil grjóthrunshætta niður gilið.

Manni bjargað úr sjálfheldu í klettum austan við Raufeldsgjá - Skessuhorn