
Birgir Þórisson tónlistarmaður. Ljósm. vaks
Kennir tónlist í fjarkennslu þvert yfir landið
Tónlistarmaðurinn Birgir Þórisson er Borgnesingur að upplagi en hefur búið á Akranesi frá árinu 2011. Fyrir einu og hálfu ári síðan sagði hann upp starfi aðstoðarskólastjóra við Tónlistarskólann á Akranesi eftir tveggja ára starf og tónlistarkennslu í skólanum í um tíu ár. Birgir tók þá ákvörðun á þessum tímapunkti að starfa eingöngu sem tónlistarmaður og einbeita sér enn frekar að tónlistarflutningi sem hefur gengið alveg ágætlega. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Birgis í stúdíó sem hann hefur innréttað þar sem hann fæst við ýmislegt.