
Verðlaunamynd Jóhönnu Marínar.
Jóhanna Marín með bestu myndina
Menningar- og markaðsnefnd kynnti í vikunni sigurvegara í Ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2024 þar sem þema keppninnar var Hvalfjarðarsveit. Ljósmyndin sem bar sigur úr býtum var tekin af Jóhönnu Marín Óskarsdóttur og voru henni afhent vegleg verðlaun, frá Sláturfélagi Suðurlands, af formanni og varaformanni nefndarinnar.