
Þrennir tónleikar með yfirskriftinni „Söngvar að heiman“ verða á Vesturlandi í næstu viku. Fara þeir fram í Borgarneskirkju 23. júlí, Grundarfjarðarkirkju 25. júlí og Stykkishólmskirkju 28. júlí. Allir tónleikarnir hefjast klukkan 17. Tónleikarnir innihalda sönglög, tvísöngva og dúetta eftir ljóðskáld og tónskáld frá Vesturlandi. Má þar nefna allt frá Agli Skallagrímssyni og Hallgrími Péturssyni til…Lesa meira








